• þri. 30. apr. 2024
  • Mótamál
  • Lengjubikarinn

Þróttur V. B-deildar meistarar Lengjubikars karla

Mynd - Helgi Þór Gunnarsson

Þróttur V. eru B-deildar meistarar Lengjubikars karla eftir sigur á Haukum í úrslitaleik keppninnar.

Leikurinn fór fram á mánudag og endaði með 3-2 sigri Þróttar V. Haukar skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins og voru þar á ferðinni þeir Frosti Brynjólfsson og Fannar Óli Friðleifsson. Ásgeir Marteinsson minnkaði muninn þegar tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik og leiddu Haukar því í hálfleik.

Ásgeir var aftur á ferðinni fyrir Þrótt V. eftir aðeins sjö mínútna leik í seinni hálfleik og Jóhannes Karl Bárðarson skoraði síðan sigurmarkið í lok leiks og sigur Þróttar V. því staðreynd.

Til hamingju Þróttur V.!