A karla - Almenn miðasala hefst kl. 12:00
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Almenn miðasala á landsleiki A karla í september hefst í dag, þriðjudag, kl. 12:00. Sem fyrr er mjög takmarkaður fjöldi miða í boði vegna sóttvarnaráðstafana.
Ísland mætir Rúmeníu 2. september, Norður Makedóníu 5. september og Þýskalandi á 8. september og fara leikirnir þrír fram á Laugardalsvelli.
Eingöngu verður selt á staka leiki, ekki er um að ræða miðapakka.
Hér að neðan má finna hlekki inn á miðasölurnar á tix.is. Í gegnum þá verður hægt að fara í röð í miðasölukerfinu 30 mínútum fyrir opnun miðasölunnar.