• þri. 16. jan. 2007
  • Leyfiskerfi

Sandgerðingar númer tvö í 1. deild

Reynir Sandgerði
reynir3

Reynir Sandgerði varð í dag annað liðið í 1. deild karla til að skila leyfisumsókn og fylgigögnum vegna komandi keppnistímabils. 

Ljóst er að Suðurnesjaliðin eru snemma á ferðinni í þessum málum, en Keflvíkingar voru fyrstir til að skila í Landsbankadeild og Njarðvíkingar voru fyrstir í 1. deild. 

Skilafrestur 1. deildarfélaganna rennur út miðvikudaginn 17. janúar.