• mán. 15. jan. 2007
  • Leyfiskerfi

Njarðvíkingar fyrstir í 1. deild

Njarðvík
njardvik2007litid

Njarðvíkingar urðu í dag, mánudag, fyrstir félaga í 1. deild karla til að skila leyfisumsókn ásamt fylgigögnum, öðrum en fjárhagslegum.  Skilafrestur í 1. deild hafði verið framlengdur til miðvikudagsins 17. janúar, en þann frest þurfti Njarðvík ekki að nýta sér. 

Lið Reykjanesbæjar urðu þar með fyrst til að skila í sínum deildum, en áður höfðu Keflvíkingar skilað fyrstir í Landsbankadeildinni.