Arnar Gunnlaugsson nýr þjálfari A landsliðs karla
Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum í kvöld, miðvikudagskvöld, að ráða Arnar Gunnlaugsson sem þjálfara A landsliðs karla.
Arnar, sem er Skagamaður að upplagi og verður 52 ára á árinu, hefur verið þjálfari meistaraflokks karla hjá Víkingi við góðan orðstír síðustu ár og unnið bæði Íslands- og bikarmeistaratitla. Hann er knattspyrnuáhugafólki einnig að góðu kunnur sem leikmaður, enda lék hann 32 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og skoraði í þeim þrjú mörk, auk þess að leika (og skora) fyrir öll yngri landsliðin. Arnar er uppalinn hjá ÍA og lék sem leikmaður flesta leiki sína hérlendis með liði Skagamanna, en lék einnig með KR, FH, Fram, Val og Haukum. Á atvinnumannaferli sínum erlendis lék Arnar í Hollandi, Þýskalandi, Frakklandi, Englandi og Skotlandi.
Fyrstu leikir íslenska landsliðsins undir stjórn Arnars verða umspilsleikir við Kósovó í mars um sæti í B-deild Þjóðadeildar UEFA. Fyrri leikurinn verður á Fadil Vokrri Stadium í Pristina 20. mars og seinni leikurinn á leikvangi Murcia á Spáni, Stadium Enrique Roca.
KSÍ býður Arnar velkominn til starfa.
Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ:
Við erum mjög ánægð með niðurstöðuna. Það eru spennandi tímar framundan hjá íslenska landsliðinu og krefjandi verkefni fyrir nýjan þjálfara í mars, sem Arnar byrjar strax að undirbúa. Við höfum mikla trú á Arnari og hlökkum til að vinna með honum næstu árin, og vonandi sem lengst.
Arnar Gunnlaugsson, nýr þjálfari A landsliðs karla:
Ég er auðvitað bara fullur tilhlökkunar að takast á við þetta spennandi og krefjandi verkefni. Það er mikill heiður og líka mikil ábyrgð sem fylgir því að vera landsliðsþjálfari Íslands. Ég er klár í það verkefni.