• mán. 25. nóv. 2024
  • Landslið
  • A karla

Hareide hættir sem þjálfari A landsliðs karla

Åge Hareide hefur ákveðið að hætta sem þjálfari A landsliðs karla og hefur hann því látið af störfum að eigin frumkvæði. Hareide tók við liðinu af Arnari Þór Viðarssyni í apríl 2023 og stýrði því í alls 20 leikjum. KSÍ þakkar Åge fyrir hans störf og óskar honum alls hins besta.

Leit að nýjum þjálfara er hafin. Næsta verkefni A landsliðs karla er í mars þar sem liðið mætir Kósovó í umspilsleikjum um sæti í B-deild Þjóðadeildar UEFA.

Leikir A landsliðs karla undir stjórn Åge Hareide

Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ:

"Ég vil byrja á því að þakka Åge fyrir hans góðu störf og óska honum velfarnaðar í framtíðinni. Á tíma hans með liðið hafa margir leikmenn tekið stór skref, leikmenn sem eiga framtíðina fyrir sér með landsliðinu. Við munum vanda til verks næstu vikur og mánuði við leit að nýjum þjálfara."

Åge Hareide:

"Ég hef notið tímans með íslenska landsliðinu, en tel að nú sé rétti tíminn til að hætta. Það eru spennandi tímar framundan fyrir liðið og margir ungir leikmenn að vaxa sem leiðtogar liðsins. Ég óska landsliðinu og íslenskri knattspyrnu alls hins besta í framtíðinni."

A landslið karla