A karla - dregið í umspil Þjóðadeildar á föstudag
Á föstudag kemur í ljós hvaða liði Ísland mætir í umspili Þjóðadeildarinnar.
Ísland verður þar í umspili um að halda sæti sínu í B deild og gæti mætt Slóvakíu, Kosóvó, Armeníu eða Búlgaríu. Drátturinn hefst kl. 11:00 að íslenskum tíma og verður hægt að fylgjast með honum í beinni útsendingu á vef UEFA.
Umspilið verður leikið í mars á næsta ári.
Hægt er að lesa frekar um dráttinn á vef UEFA.