• þri. 12. nóv. 2024
  • Mannvirki

Úthlutanir úr mannvirkjasjóði 2024

Tuttugu og sjö umsóknir bárust í mannvirkjasjóð KSÍ árið 2024 og er heildarkostnaður við áætlaðar framkvæmdir tæplega 1,2 milljarðar króna. Til úthlutunar úr sjóðnum í ár eru 30 milljónir.

Unnið var heildstætt mat á öllum umsóknum og þær metnar með hliðsjón af gildandi skorkorti. Þannig var unninn listi með einkunnagjöf sem er grunnurinn að tillögu til stjórnar KSÍ. Stjórn KSÍ samþykkti tillögu mannvirkjanefndar um eftirtaldar úthlutanir úr sjóðnum:

Félag - Verkefni - Styrkupphæð
Fylkir - Endurbætur á aðstöðu knattspyrnudeildar - kr. 1.470.000
HK - Gervigras í kórnum (endurnýjun) - kr. 1,523,806
Höttur - 1. Fasi Uppsetning viðbygging (fokheld) - kr. 8.700.000
Höttur - 2. Fasi Allur loka frágangur á Viðbyggingu - kr. 6.632.820
ÍR - Gluggi á blaðamannagám við grasvöll ÍR - kr. 430.922
KA - Flóðlýsing við nýjan keppnisvöll - kr. 1.523.806
KA - Gervigras á nýjan keppnisvöll - kr. 1.142.854
Keflavík - Tengja hitakerfi á aðalvelli - kr. 2.927.292
KFR - Vallarklukka/Marktafla - kr. 500.000
Sindri - Vallarklukka á Jökulfellsvöll - kr. 1.000.000
Stjarnan - Vallarklukka Samsungvöllur - kr. 1.000.000
Stjarnan - Öryggisgirðing og hringhlið - kr. 2.005.646
Vestri - Gervigrasvöllur Aðalvöllur - kr. 1.142.854
Heildarupphæð kr. 30.000.000

Vakin er athygli á því að samkvæmt kröfum UEFA (sem fjármagnar sjóðinn) skal KSÍ njóta góðra kjara komi til þess að KSÍ leigi þá aðstöðu sem fjármögnuð er að hluta til með styrk úr sjóðnum.

Minnt er á eftirfarandi ákvæði í reglugerð um mannvirkjasjóð KSÍ varðandi greiðslur úr sjóðnum:

  • Umsækjandi skal leita eftir áliti mannvirkjanefndar KSÍ s.s. vegna endurnýjunar á leikvelli (gras yfir í gervigras eða endurnýjun gervigrass) áður en framkvæmdir hefjast. Í þeim tilvikum sem framkvæmd er unnin án þess að vera til þess fallin að uppfylla ákvæði reglna/leyfiskerfa KSÍ þá fellur styrktarheimild niður.
  • Áður en styrkur er greiddur út skal starfsmanni mannvirkjanefndar KSÍ sent staðfest kostnaðaruppgjör framkvæmdanna af skoðunarmanni/endurskoðanda. Einnig skal fylgja viðeigandi sundurliðun og úttekt byggingarfulltrúa um lok framkvæmda ef framkvæmdin er leyfisskyld.
  • Vilyrði KSÍ fyrir styrk úr mannvirkjasjóði fellur niður ef framkvæmdir félags hefjast ekki á því almanaksári sem vilyrðið fyrir styrk er veitt.
  • Hafi vilyrði fyrir styrk úr mannvirkjasjóði verið veitt, en félag sér fram á að framkvæmdir muni ekki hefjast á því almanaksári sem vilyrði er veitt, er félagi heimilt að óska eftir frestun á umsókn sinni um styrkveitingu.
  • Ósk um frestun, sem þarf að vera skrifleg og rökstudd, þarf að berast starfsmanni mannvirkjanefndar KSÍ eigi síðar en einum mánuði fyrir lok þess almanaksárs sem fyrirhugaðar framkvæmdir áttu að hefjast.
  • KSÍ birtir árlega lista yfir styrki sem veittir hafa verið úr mannvirkjasjóði KSÍ.
  • Styrkurinn verður greiddur út þegar framkvæmdum er lokið.
  • Vilyrði fyrir styrkveitingu er háð því að framkvæmdum sé lokið fyrir 31. desember 2024

Um Mannvirkjasjóð