• þri. 29. okt. 2024
  • Fræðsla

UEFA CFM stjórnunarnám fyrir leikmenn haldið í 4. sinn

Knattspyrnusamband Evrópu (UEFA) býður upp á stjórnunarnám sem er sérsniðið að knattspyrnufólki sem hefur áhuga á að starfa við íþróttina að ferlinum loknum. Námið kallast UEFA Certificate in Football Management (CFM) – Players´ Edition og byggir á sama grunni og CFM nám fyrir stjórnendur í knattspyrnuhreyfingunni, sem haldið hefur verið með góðum árangri um árabil og meðal annars KSÍ hefur staðið fyrir hér á landi í samstarfi við UEFA.  Slíkt nám stendur einmitt yfir hjá KSÍ nú um stundir.

UEFA CFM – Players´ Edition er nú haldið í fjórða sinn og þó það sé miðað að leikmönnum, þá geta einnig þjálfarar og dómarar sótt um að komast í námið, sem er diplómanám (Certificate of Advanced Studies) og fer fram á ensku. Námið hefst seinnipart janúar 2025 og er um fjarnám að ræða í samstarfi við háskólann í Lausanne. Í boði eru 10 ECTS einingar. Umsóknarfrestur er til 24. nóvember 2024.

Smellið hér fyrir nánari upplýsingar um námið