Miðar fyrir handhafa A og DE skírteina á leiki Íslands gegn Wales og Tyrklandi
Mynd - Mummi Lú
Í samræmi við reglugerð KSÍ um aðgönguskírteini eiga handhafar A og DE skírteina rétt á miðum á alla leiki í mótum á vegum KSÍ og landsleiki KSÍ innanlands.
Skírteinishafar sem vilja nýta sér þennan rétt og fá miða á leiki Íslands gegn Wales og Tyrklandi geta nú skráð sína miðaósk með því að smella á leikinn neðst í fréttinni. Athugið að takmarkað magn miða er í boði á leikinn.
Hægt verður að óska eftir miðum til18:00 fimmtudaginn 10. október.