Fundur formanna og framkvæmdastjóra verður 30. nóvember
Árlegur fundur formanna og framkvæmdastjóra aðildarfélaga KSÍ verður haldinn laugardaginn 30. nóvember næstkomandi í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli (3. hæð).
Gert er ráð fyrir dagskrá bæði fyrir og eftir hádegi og eru fulltrúar aðildarfélaga beðnir um að taka daginn frá. Dagskrá er í undirbúningi og verður birt á vef KSÍ og send aðildarfélögum þegar nær dregur. Ef aðildarfélög KSÍ hafa ábendingar um fundarefni eru þau hvött til þess að senda tölvupóst á media@ksi.is.