• fös. 14. jún. 2024
  • Landslið
  • A kvenna

Fjórtánda sæti á FIFA-listanum

Ísland er í 14. sæti á nýútgefnum styrkleikalista FIFA fyrir A landslið kvenna og hækkar um eitt sæti frá síðustu útgáfu, fer upp fyrir Ítalíu.  Spánn er sem fyrr á toppnum og Frakkland er nú komið yfir England í 2. sætið og Þýskaland fer upp fyrir Bandaríkin í 4. sætið.  Holland fer út af topp 10 í fyrsta sinn í sjö ár.  Hástökkvarinn að þessu sinni er Norður-Makedónía sem fer upp um tólf sæti.

Fjórtánda sætið er jöfnun á besta árangri íslenska liðsins.  Þessu sæti var fyrst náð í ágúst 2022, aftur í mars og ágúst 2023 og svo núna.

Styrkleikalistinn