Holland á De Kuip á mánudag
A landslið karla er komið til Hollands til undirbúnings fyrir vináttuleik við heimamenn í Rotterdam á mánudag. Liðið æfir á keppnisvellinum, De Kuip, heimavelli Feyenoord, á sunnudag.
Sem kunnugt er mætti íslenska liðið Englandi á Wembley á föstudagskvöld og vann þar frækinn eins marks sigur með marki frá Jóni Degi Þorsteinssyni. Englendingar voru þar að leika sinn síðasta leik fyrir lokakeppni EM, líkt og Hollendingar gera á mánudag.
Leikurinn á mánudag er, líkt og leikurinn við England síðastliðinn föstudag, í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2 sport.