Mæta Úkraínu í Póllandi á þriðjudag
A landslið karla mætir Úkraínu í Póllandi á þriðjudag í úrslita-umspilsleik um sæti í lokakeppni EM 2024 í Þýskalandi í sumar. Leikurinn fer fram á borgarleikvanginum í Wroclaw og hefst kl. 19:45 að íslenskum tíma, í beinni útsendingu (og opinni dagskrá) á Stöð 2 sport. Von er á hundruðum íslenskra stuðningsmanna á leikinn og stemmningin ætti að verða mögnuð.
Í undanúrslitum umspilsins lagði íslenska liðið sem kunnugt er lið Ísraels með fjórum mörkum gegn einu þegar liðin mættust í Búdapest, Ungverjalandi síðastliðið fimmtudagskvöld. Sama dag unnu Úkraínumenn 2-1 sigur á Bosníumönnum, sem leiddu lengi vel en tvö úkraínsk mörk undir lokin sneru taflinu við.
Ísland og Úkraína hafa mæst fjórum sinnum áður í A landsliðum karla. Hvort lið um sig hefur unnið einu sinni, og tvisvar hafa liðin gert jafntefli. Úkraína er sem stendur í 24. sæti styrkleikalista FIFA, en Ísland er í 73. sæti.