Miðasala á Ísland - Pólland hefst á föstudag
Miðasala á fyrsta leik A landsliðs kvenna í undankeppni EM 2025 gegn Póllandi hefst föstudaginn 22. mars kl. 12:00.
Leikurinn fer fram á Kópavogsvelli og hefst hann kl. 16:45. Völlurinn opnar fyrir áhorfendumkl. 15:45.
Miðaverð er 3.450 kr. fyrir fullorða og 1.725 kr. fyrir 16 ára og yngri. Selt verður í ónúmeruð sæti.
EM 2025 fer fram í Sviss dagana 2. - 27. júlí. Leikið verður á eftirfarandi völlum:
- St. Jakob-Park, Basel
- Stadion Wankdorf, Bern
- Stade de Genève, Geneva
- Stadion Letzigrund, Zürich
- Stadion St. Gallen, St. Gallen
- Stadion Luzern, Lucerne
- Arena Thun, Thun
- Stade de Tourbillon, Sion
Undankeppni EM 2025 á síðu KSÍ
A landslið kvenna getur tryggt sér sæti í lokakeppni EM fimmta mótið í röð! Við hvetjum landsmenn til að fjölmenna á völlinn og sýna stuðning í verki.
Mynd: Hulda Margrét