Lokaleikur í Lissabon
A landslið karla mætti Portúgal í Lissabon í kvöld, sunnudagskvöld. Um var að ræða leik í lokaumferð riðilsins í undankeppni EM 2024. Heimamenn voru mun meira með boltann í leiknum eins og búast mátti við og voru sterkari aðilinn. Íslenska liðið varðist af krafti og festu allan leikinn og fékk einnig tækifæri til að skora.Portúgal skoraði eitt mark í hvorum hálfleik og vann 2-0 sigur. Portúgalska liðið lauk þar með keppni með 10 sigra, fullt hús stiga. Ísland hafnar í 4. sæti riðilsins. Leið Íslands í lokakeppni EM liggur nú í gegnum umspilið, og mun sú staða skýrast strax að loknum leikjum í öðrum riðlum.
A landslið karla