Miðar fyrir handhafa A og DE skírteina á Ísland - Liechtenstein
Í samræmi við reglugerð KSÍ um aðgönguskírteini eiga handhafar A og DE
skírteina rétt á miðum á alla leiki í mótum á vegum KSÍ og landsleiki
KSÍ innanlands. Skírteinishafar sem vilja nýta sér þennan rétt og fá
miða á leik Íslands og Liechtenstein í undankeppni EM 2024 geta nú
óskað eftir að fá miða í gegnum skráningarform. Athugið að
takmarkað magn miða er í boði á hvern leik. Skírteinishafar geta óskað
eftir að fá tvo aðra miða við hliðina á frímiðanum og er þá greitt fyrir
þá miða fullu verði. Hægt er að óska eftir miðum til 12:00 föstudaginn 13. október.