Félagaskiptagluggar loka 1. ágúst og 15. ágúst
Félagaskiptagluggar í öllum deildum á Íslandi eru opnir eins og er og loka þeir ýmist 1. ágúst eða 15. ágúst.
Félagaskiptagluggar í eftirfarandi deildum loka 1. ágúst á miðnætti:
- Lengjudeild kvenna
- 2. deild kvenna
- 2. deild karla
- 3. deild karla
- 4. deild karla
- 5. deild karla
- Yngri flokkar
Félagaskiptagluggar í eftirfarandi deildum loka 15. ágúst á miðnætti:
- Besta deild kvenna
- Besta deild karla
- Lengjudeild karla