Mæta Portúgal á þriðjudag
A landslið karla mætir Portúgal á Laugardalsvelli á þriðjudag. Leikurinn hefst kl. 18:45 og er í beinni útsendingu á Viaplay (opin dagskrá). Íslenska liðið er með 3 stig í riðlinum eftir þrjá leiki en Portúgalar eru með fullt hús stiga eftir jafn marga leiki og markatöluna 13-0.
Ísland og Portúgal hafa fimm sinnum mæst í A landsliðum karla. Portúgal hefur unnið fjórum sinnum og einu sinni gerðu liðin jafntefli, en það var í fyrsta leiknum á EM 2016. Birkir Bjarnason jafnaði metin fyrir Ísland í þeim leik og hann er einmitt í íslenska hópnum sem mætir Portúgal á þriðjudag.
Leikurinn hefst kl. 18:45 en fyrir leikinn verður fan zone á svæðinu utan við leikvanginn það sem hægt er að kaupa ýmsar veitingar, og spreyta sig á knattþrautum og alls konar skemmtilegu, og er fólk hvatt til að mæta vel tímanlega fyrir leikinn.
Mynd með grein: Mummi Lú