Naumt tap gegn Slóvakíu
A landslið karla tapaði 1-2 gegn Slóvakíu á Laugardalsvelli í dag, laugardag.
Slóvakar komust yfir með marki frá Juraj Kucka á 27. mínútu en Ísland jafnaði metin á 41. mínútu þegar Alfreð Finnbogason skoraði úr vítaspyrnu.
Sigurmark Slóvaka skoraði Tomáš Suslov á 69. mínútu og reyndist það sigurmark leiksins.
Næsti leikur Íslands er þriðjudaginn 20. júní þegar Portúgalir koma í heimsókn á Laugardalsvöll. Leikurinn hefst klukkan 18:45 og verður hann í beinni útsendingu á Viaplay (opin dagskrá).
Mynd með grein: Mummi Lú