Uppselt í mótsmiðasölu
Mótsmiðar sem settir voru í sölu í dag, miðvikudag, klukkan 12:00 eru allir seldir.
KSÍ þakkar frábæran stuðning og við hlökkum til að sjá ykkur á leikjunum sem framundan eru.
Enn eru lausir miðar í almennri miðasölu á Ísland - Slóvakía sem fram fer þann 17. júní kl. 18:45. Við hvetjum fólk til að kaupa miða á leikinn og taka þátt í þjóðhátíðarstemningu á Laugardalsvelli. Fyrir leik verður Fan Zone sem opnar klukkan 15:00 þar sem alls kyns afþreying verður í boði fyrir börn og fullorðna.