Úrslitaleikur Baltic Cup í dag
A landslið karla mætir Lettlandi í úrslitaleik Eystrasaltsbikarsins (Baltic Cup) í Riga í dag. Leikurinn hefst kl. 14:00 að íslenskum tíma og er í beinni útsendingu á RÚV.
Íslenska liðið lagði Litháen í undanúrslitum, hafði betur í vítaspyrnukeppni eftir markalausan leik. Lettland lagði Eistland í sínum undanúrslitaleik, einnig eftir vítaspyrnukeppni. Eistland og Litháen mætast í dag í Tallinn í leik um þriðja sætið á mótinu.
Ísland og Lettland hafa mæst 6 sinnum áður í A landsliðum karla. Ísland hefur unnið tvo leiki, Lettland tvo, tvisvar hafa liðin skilið jöfn, og markatalan í leikjunum er jöfn, 11-11.