Mæta SA í SAF á sunnudag
A landslið karla mætir Sádi-Arabíu í vináttuleik á sunnudag. Leikurinn fer fram í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, hefst kl. 12:00 að íslenskum tíma og er í beinni útsendingu á Viaplay. Íslenski hópurinn, sem er að stórum hluta skipaður leikmönnum úr Bestu deildinni, hefur æft síðustu daga í Abu Dhabi við góðar aðstæður.
Ísland og Sádi-Arabía hafa fimm sinnum áður mæst í A landsliðum karla, fyrst árið 1984 og síðast árið 2002. Íslenska liðið hefur unnið einu sinni, tvisvar hafa liðin skilið jöfn og tvisvar hafa Sádar unnið sigur.