A karla - Ísland í J riðli í undankeppni EM 2024
Mynd - Mummi Lú
Dregið hefur verið í undankeppni EM 2024 og verður Ísland í J riðli.
Mótherjar Íslands þar verða Portúgal, Bosnía og Hersegóvína, Lúxemborg, Slóvakía og Liechtenstein.
Undankeppnin hefst í mars 2023 og klárast, með umspili, í mars 2024. Lokakeppnin verður haldin í Þýskalandi sumarið 2024.