Víti í Vínarborg
A landslið karla lagði Venesúela með einu marki gegn engu í vináttuleik sem fram fór í Vínarborg í Austurríki í kvöld, fimmtudagskvöld. Eina mark leiksins kom úr vítaspyrnu undir lok leiksins.
Leikurinn var í járnum lengst af, lítið um færi og staðan í hálfleik var markalaus. Íslenska liðið þurfti að gera breytingu þegar Arnór Sigurðsson fór meiddur af velli eftir harða tæklingu á 20. mínútu. Leikurinn opnaðist ekki mikið í seinni hálfleik og bæði lið léku sterkan varnarleik þó Ísland hafi átt nokkrar ágætis tilraunir til að skora. Eina mark leiksins kom úr vítaspyrnu á 87. mínútu. Brotið var á Þóri Jóhanni Helgasyni þegar hann reyndi markskot og Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði úr vítaspyrnunni af miklu öryggi.
Eins marks sigur Íslands staðreynd og gott veganesti í leik sem er framundan gegn Albaníu í Þjóðadeild UEFA.