A kvenna - Ísland mætir Belarús á föstudag kl. 17:30
Ísland tekur á móti Belarús í næst síðasta leik sínum í undankeppni HM 2023 á Laugardalsvelli á föstudag kl. 17:30.
Íslenska liðið er í 2. sæti í sínum riðli og getur með sigri komist upp fyrir Holland og þar með í efsta sæti riðilsins.
Fyrri leik liðanna lauk með 5-0 sigri íslenska liðsins og situr Belarús í 3. sæti riðilsins.
Miðasala er á Tix.is og er miðaverð 1000 - 4000 krónur. Völlurinn opnar kl. 16:00 fyrir áhorfendum.