Mæta Ísrael á mánudag
A landslið karla mætir Ísrael á Laugardalsvelli á mánudag og er þetta önnur viðureign liðanna í Þjóðadeildinni. Fyrri viðureignin fór fram í Haifa og lauk með 2-2 jafntefli eftir hörkuleik. Ísraelar eru á toppi riðilsins í B-deild Þjóðadeildar UEFA eftir sigur á Albönum í Tirana á föstudagskvöld. Sigurinn setur Ísraela vissulega í góða stöðu og íslenska liðið ætlar sér þrjú stig á mánudag.
Þar sem leikir Rússlands í Þjóðadeildinni munu ekki fara fram er ljóst að ekkert hinna liðanna þriggja í riðlinum á möguleika á að falla í C-deild.
Viðureign Íslands og Ísraels er í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Viaplay. Á forsíðu Viaplay á Íslandi eru upplýsingar um hvernig fólk horfir á leikina. Einnig verður hægt að fylgjast með gangi mála á samfélagsmiðlum KSÍ (@footballiceland).
Leikur Íslands og Ísraels á mánudag hefst kl. 18:45. Miðasala á leikinn er í fullum gangi á Tix.is. Inngangar á Laugardalsvelli opna 90 mínútum fyrir leik.