Mæta San Marínó á fimmtudag
A landslið karla mætir San Marínó í vináttulandsleik á þjóðarleikvanginum í Serravalle á fimmtudag. Leikurinn hefst kl. 18:45 og er í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Viaplay.
Ísland og San Marínó hafa ekki áður mæst í A landsliðum karla. Þetta verður þriðji leikur íslenska liðsins í fjögurra leikja seríu í júní. Liðið hefur þegar mætt Ísrael ytra og Albaníu á Laugardalsvelli í Þjóðadeildinni og gert jafntefli í þeim báðum. Þriðji Þjóðadeildarleikurinn verður svo á Laugardalsvelli gegn Ísrael 13. júní, en í millitíðinni er fyrrgreindur vináttuleikur við San Marínó.