Breytingar á hópnum fyrir leikinn við San Marínó
Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á leikmannahópi A landsliðs karla fyrir vináttuleikinn við San Marínó, sem fram fer á Stadio Olimpico di Serravalle á fimmtudag.
Birkir Bjarnason, Hörður Björgvin Magnússon og Alfons Sampsted fara ekki með liðinu til San Marínó og Bjarki Bjarkason færist í U21 landsliðið.
Inn í hópinn fyrir leikinn við San Marínó koma Jason Daði Svanþórsson, Damir Muminovic og Höskuldur Gunnlaugsson úr Breiðabliki, og Júlíus Magnússon úr Víkingi R.
Leikurinn við San Marínó er í beinni útsendingu og opinni dagskrá hjá Viaplay.
Miðasala á heimaleiki A og U21 landsliða karla er á tix.is.