A karla - Tap á Spáni
A landslið karla tapaði 0-5 gegn Spáni í vináttuleik, en leikið var á Riazor í A Coruna á Spáni.
Spánverjar stjórnuðu leiknum frá upphafi til enda, voru mun meira með boltann og hleypti Íslandi aldrei inn í leikinn. Alvaro Morata skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik, Pablo Sarabia tvö í þeim seinni ásamt því að Yeremy Pina skoraði í upphafi síðari hálfleiks.
Næstu leikir Íslands eru þrír leikir í Þjóðadeild UEFA í júní. Liðið mætir Ísrael ytra 2. júní, Albaníu á Laugardalsvelli 6. júní og Ísrael á Laugardalvelli 13. júní.