Undirbúningur hafinn fyrir vináttuleikina tvo á Spáni
A landslið karla kemur saman á Spáni til undirbúnings fyrir vináttuleikina gegn Finnum og Spánverjum sem fara fram þar í landi. Fyrst mætir íslenska liðið Finnum í Murcia þann 26. mars og síðan heimamönnum Spánverjum í Coruna 29. mars. Fyrsta æfing liðsins fór fram í dag, mánudag, og tók rúmlega helmingur hópsins þátt í henni, eða allir þeir leikmenn sem eru komnir á staðinn. Aðrir leikmenn eru væntanlegir síðar í dag og í kvöld.