Ari og Höskuldur í hópinn
Tvær breytingar hafa verið gerðar á leikmannahópi A landsliðs karla fyrir vináttuleikina við Finnland og Spán. Hjörtur Hermannsson og Guðmundur Þórarinsson eru meiddir og í þeirra stað koma Ari Leifsson og Höskuldur Gunnlaugsson.
Þeir Ari og Höskuldur voru báðir í íslenska landsliðshópnum sem lék tvo vináttuleiki í Tyrklandi í janúar, gegn Úganda og Suður-Kóreu, og báðir hafa þeir leikið þrjá A-landsleiki.