Mæta Úganda á miðvikudag
A landslið karla er við æfingar í Belek í Tyrklandi um þessar mundir og leikur þar tvo vináttuleiki í vikunni. Fyrst mætir liðið Úganda á miðvikudag kl. 14:00 að íslenskum tíma og síðan Suður-Kóreu á laugardag kl. 11:00 að íslenskum tíma. Ísland hefur aldrei áður mætt þessum þjóðum í A landsliði karla. Báðir leikirnir verða í beinni útsendingu á Stöð 2 sport.