A karla í 62. sæti á FIFA-listanum
A landslið karla er í 62. sæti á nýútgefnum styrkleikalista FIFA og fellur því um tvö sæti frá því listinn var síðast gefinn út. Ísland hefur hæst náð í 18. sæti listans og lægst verið í 131. sæti, en meðalstaða liðsins frá upphafi á listanum er 64. sæti.
Belgar eru sem fyrr á toppnum og engin breyting er á topp 10 milli mánaða. Indónesía bætir við sig flestum stigum milli mánaða og er annar af hástökkvurum mánaðarins ásamt Nýja-Sjálandi (upp um 10 sæti), en kínverska Taípei tapar flestum stigum og Norður-Írland fellur mest allra (um 11 sæti).
Styrkleikalisti FIFA fyrir karlalandslið
Mynd: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net