Undirbúningur hafinn fyrir leikina tvo í undankeppni HM 2022
A landslið karla er komið saman til æfinga fyrir leikina tvo sem eru framundan í undankeppni HM 2022. Um er að ræða tvo heimaleiki - gegn Armeníu 8. október og gegn Liechtenstein 11. október. Miðasala á báða leikina er í fullum gangi á Tix.is. Á mánudag æfði liðið á Laugardalsvelli en í Kaplakrika í dag, þriðjudag, og má sjá myndir Hafliða Breiðfjörð ljósmyndara frá æfingunni á samfélagsmiðlum KSÍ.
Mynd: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net