Mikael Egill og Daníel Leó í A landsliðið
Breytingar hafa verið gerðar á leikmannahópi A landsliðs karla fyrir komandi leiki í undankeppni HM 2022 – heimaleiki gegn Armeníu 8. október og gegn Liechtenstein 11. október. Jóhann Berg Guðmundsson og Jón Guðni Fjóluson verða ekki með vegna meiðsla og í þeirra stað koma Daníel Leó Grétarsson og Mikael Egill Ellertsson.
Daníel Leó á einn A landsleik að baki, gegn Kanada í janúar 2020. Mikael Egill hefur ekki leikið A landsleik, en var í hópnum í september.
Mynd: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net