A karla - Dregið í Þjóðadeild UEFA 16. desember
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dregið verður í Þjóðadeild UEFA fimmtudaginn 16. desember.
Drátturinn fer fram í Montreux í Sviss og hefst hann kl. 17:00 að íslenskum tíma. Hægt verður að fylgjast með honum í beinni útsendingu á vef UEFA.
Ísland leikur að þessu sinni í B deild og er liðið þar í fyrsta styrkleikaflokki.
Fyrsti styrkleikaflokkur
Úkraína
Svíþjóð
Bosnía og Hersegóvína
Ísland
Annar styrkleikaflokkur
Finnland
Noregur
Skotland
Rússland
Þriðji styrkleikaflokkur
Ísrael
Rúmenía
Serbía
Írland
Fjórði styrkleikaflokkur
Slóvenía
Svartfjallaland
Albanía
Armenía