Dregið í Mjólkurbikarnum 28. júní.
Dregið verður í Mjólkurbikarnum mánudaginn 28. júní næstkomandi kl. 12:00 í höfuðstöðvum KSÍ (undanúrslit kvenna og 16-liða úrslit karla).
Félög sem komast í gegnum 8-liða úrslit kvenna og 32-liða úrslit karla eru hvött til að senda sína fulltrúa í dráttinn. Fulltrúar fjölmiðla eru að sjálfsögðu velkomnir.
Undanúrslit Mjólkurbikars kvenna fara fram 16. júlí. Valur hefur þegar tryggt sér sæti í undanúrslitum en þrír leikir fara fram í 8 liða úrslitunum í kvöld (föstudag).
16 liða úrslit Mjólkurbikars karla fara fram 11. og 12. ágúst og verða eftirtalin lið í pottinum þegar dregið verður
- FH
- Fjölnir
- Fylkir
- Haukar
- HK
- ÍA
- ÍR
- KA
- Keflavík
- KR
- KFS
- Valur
- Vestri
- Víkingur R.
- Völsungur
- Þór Akureyri