A karla æfði á Tórsvelli
A landslið karla æfði í dag, fimmtudag, á Tórsvelli í Færeyjum, en Færeyjar og Ísland mætast Þórshöfn í vináttuleik á föstudagskvöld. Leikurinn hefst kl. 18:45 að íslenskum tíma og er í beinni útsendingu á RÚV.
Ísland og Færeyjar hafa mæst 25 sinnum í A landsliðum karla og hefur íslenska liðið unnið sigur 23 sinnum. Niðurstaðan var markalaust jafntefli í viðureign liðanna árið 1984 og eini sigur Færeyinga hingað til kom í vináttuleik í Kórnum í Kópavogi árið 2009.
Allir leikirnir nema tveir hafa verið vináttuleikir - Ísland og Færeyjar voru saman í riðli í undankeppni EM 2004 og vann íslenska liðið 2-1 sigur í báðum viðureignum liðanna. Arnar Þór Viðarsson, þjálfari A landsliðs karla, og Eiður Smári Guðjohnsen aðstoðarþjálfari léku báða þessa leiki og skoraði Eiður Smári í útileiknum.