Breytingar á fjöldatakmörkunum 10. maí
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið næstu breytingar á á fjöldatakmörkunum og taka þær gildi frá og með mánudeginum 10. maí. Á meðal breytinga má nefna að almennar fjöldatakmarkanir fara úr 20 í 50 manns, hámarksfjöldi þátttakenda í íþróttum verður 75 manns í hverju hólfi og hámarksfjöldi sitjandi gesta á íþróttaviðburðum verður 150 manns í hverju hólfi.
Á meðal breytingar sem kynntar eru á vef Stjórnarráðsins:
- Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 20 í 50 manns. Börn fædd 2015 og síðar verði áfram undanþegin.
- Nándarregla verði áfram almennt tveir metrar.
- Grímuskylda og leiðbeiningar um grímunotkun óbreyttar. Börn fædd 2005 og síðar undanþegin grímuskyldu.
- Líkamsræktarstöðvar opnar fyrir 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta, en ekki fleiri en 50 manns í hverju rými. Önnur skilyrði óbreytt.
- Íþróttir: Hámarksfjöldi þátttakenda í íþróttum 75 í stað 50 í hverju hólfi.
- Sitjandi viðburðir: Hámarksfjöldi áhorfenda eða gesta á sitjandi viðburðum, s.s. íþróttakappleikjum, sviðslistum, athöfnum trúar- og lífskoðunarfélaga, verður 150 manns í hverju sóttvarnahólfi í stað 100. Önnur skilyrði óbreytt.