• mán. 19. apr. 2021
  • Dómaramál

Héraðsdómaranámskeið fyrir konur þriðjudaginn 20. apríl

Héraðsdómaranámskeið fyrir konur verður haldið höfuðstöðvum KSÍ (3. hæð) þriðjudaginn 20. apríl kl. 17:30.

Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi dómara og þá sem vilja öðlast réttindi héraðsdómara og mun Bríet Bragadóttir FIFA dómari kenna á námskeiðinu.

Héraðsdómaranámskeiðið veitir dómurum réttindi til að starfa á leikjum í meistaraflokki, en um er að ræða tveggja og hálfs tíma fyrirlestur.

Einungis þeir sem lokið hafa byrjendanámskeiði hafa rétt á því að sitja námskeiðið. Ekkert próf en viðvera gefur réttindi til héraðsdómara og er námskeiðið ókeypis. Lögð er áhersla á hagnýtar hliðar dómgæslunnar.

Skráning er hafin á magnus@ksi.is.

Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð