Hópurinn fyrir leiki gegn Ungverjalandi, Danmörku og Englandi
Erik Hamrén, landsliðsþjálfari A karla, hefur tilkynnt hópinn fyrir leikina þrjá í nóvember.
Ísland mætir Ungverjalandi 12. nóvember ytra í úrslitaleik umspilsins fyrir EM 2020. Liðið sem vinnur leikinn tryggir sér sæti í lokakeppni EM 2020. Ísland mætir síðan Danmörku 15. nóvember og Englandi 18. nóvember í Þjóðadeild UEFA.
Hópurinn
Hannes Þór Halldórsson | Valur | 72 leikir
Rúnar Alex Rúnarsson | Arsenal | 6 leikir
Ögmundur Kristinsson | Olympiacos | 16 leikir
Birkir Már Sævarsson | Valur | 93 leikir, 2 mörk
Hjörtur Hermannsson | Bröndby | 17 leikir, 1 mark
Ragnar Sigurðsson | FC Köbenhavn | 96 leikir, 5 mörk
Sverrir Ingi Ingason | PAOK | 33 leikir, 3 mörk
Kári Árnason | Víkingur R. | 85 leikir, 6 mörk
Hólmar Örn Eyjólfsson | Rosenborg | 17 leikir, 2 mörk
Ari Freyr Skúlason | KV Oostende | 74 leikir
Hörður Björgvin Magnússon | CSKA Moscow | 32 leikir, 2 mörk
Guðlaugur Victor Pálsson | SV Darmstadt 98 | 20 leikir
Arnór Sigurðsson | CSKA Moscow | 10 leikir, 1 mark
Arnór Ingvi Traustason | Malmö | 37 leikir, 5 mörk
Birkir Bjarnason | Brescia | 89 leikir, 13 mörk
Rúnar Már Sigurjónsson | Astana | 28 leikir, 1 mark
Gylfi Sigurðsson | Everton | 76 leikir, 24 mörk
Jóhann Berg Guðmundsson | Burnley | 76 leikir, 8 mörk
Aron Einar Gunnarsson | Al Arabi | 89 leikir, 2 mörk
Viðar Örn Kjartansson | Valerenga | 27 leikir, 3 mörk
Jón Daði Böðvarsson | Millwall | 52 leikir, 3 mörk
Kolbeinn Sigþórsson | AIK | 59 leikir, 26 mörk
Albert Guðmundsson | AZ Alkmaar | 15 leikir, 3 mörk
Alfreð Finnbogason | Augsburg | 59 leikir, 15 mörk