13. viðureignin við Belgíu
A landslið karla mætir Belgíu í Þjóðadeild UEFA í kvöld, miðvikudagskvöld. Leikurinn fer fram á Laugardalsvellinum, hefst kl. 18:45 og er í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2 Sport. Líkt og á fyrri leikjum mánaðarins verða einu áhorfendurnir á vellinum 60 liðsmenn Tólfunnar.
Þessar tvær þjóðir hafa alls mæst 12 sinnum áður í A landsliðum karla og hafa Belgar unnið sigur í öllum viðureignunum hingað til.
Fyrstu leikirnir voru í undankeppni HM 1958 þar sem liðin léku í þriggja liða riðli ásamt Frakklandi og veittu Belgar Frökkum harða keppni. Frakkar unnu riðilinn og komust í úrslitakeppnina í Svíþjóð þar sem þeir féllu úr leik í undanúrslitum gegn Brasilíu og ungstirninu Pelé, sem skoraði þrennu í leiknum. Frakkinn Just Fontaine skoraði einnig í leiknum og lauk keppni með 13 mörk, sem er enn þann dag í dag met í úrslitakeppni HM.
Ísland og Belgía mættust síðan alls 6 sinnum á 8. áratugnum - voru saman í riðli í undankeppni HM 1974, EM 1976 og HM 1978 - Belgar unnu sem fyrr segir alla leikina og íslenska liðið náði ekki að skora í neinum leikjanna. Sjálfsagt voru margir því fegnir að mæta ekki Belgum um margra ára skeið eftir þetta og næsti leikur var vináttuleikur í Brussel 2014. Síðan hafa þjóðirnar verið saman í riðli í Þjóðadeildinni í bæði skipti sem sú keppni hefur farið fram og er leikurinn í kvöld seinni leikurinn í þeirri keppni sem nú stendur yfir.
Dómari leiksins verður Andris Treimanis frá Lettlandi. Landar hans, þeir Haralds Gudermanis og Aleksejs Spasjonnikovs, verða aðstoðardómarar. Fjórði dómari verður Kevin Clancy frá Skotlandi.
Mynd: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net