• fös. 02. okt. 2020
  • Landslið
  • A karla

Hópur Íslands fyrir leikina þrjá í október

Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Erik Hamrén, landsliðsþjálfari A karla, hefur tilkynnt hópinn sem mætir Rúmeníu, Danmörku og Belgíu í október.

Leikirnir þrír fara allir fram á Laugardalsvelli. Þann 8. október mætir Ísland Rúmeníu í undanúrslitum umspils fyrir EM 2020 og hefst leikurinn kl. 18:45. Liðið sem vinnur leikinn mætir Búlgaríu eða Ungverjalandi ytra í leik um sæti á EM 2020.

Leikirnir gegn Dönum og Belgum eru svo í Þjóðadeild UEFA. Fyrst mætir liðið Danmörku þann 11. október kl. 18:45 og síðan Belgíu 14. október kl. 18:45. Allir leikirnir verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Hópurinn

Hannes Þór Halldórsson | Valur | 70 leikir

Rúnar Alex Rúnarsson | Arsenal | 5 leikir

Ögmundur Kristinsson | Olympiacos | 16 leikir

Ari Freyr Skúlason | KV Oostende | 73 leikir

Hörður Björgvin Magnússon | CSKA Moscow | 29 leikir, 2 mörk

Birkir Már Sævarsson | Valur | 92 leikir, 1 mark

Kári Árnason | Víkingur R. | 84 leikir, 6 mörk

Ragnar Sigurðsson | FC Köbenhavn | 94 leikir, 5 mörk

Sverrir Ingi Ingason | PAOK | 30 leikir, 3 mörk

Hólmar Örn Eyjólfsson | Rosenborg | 15 leikir, 2 mörk

Hjörtur Hermannsson | Bröndby | 16 leikir, 1 mark

Birkir Bjarnason | Brescia | 86 leikir, 13 mörk

Aron Einar Gunnarsson | Al Arabi | 87 leikir, 2 mörk

Gylfi Sigurðsson | Everton | 74 leikir, 22 mörk

Rúnar Már Sigurjónsson | Astana | 25 leikir, 1 mark

Guðlaugur Victor Pálsson | SV Darmstadt 98 | 17 leikir

Arnór Ingvi Traustason | Malmö FF | 34 leikir, 5 mörk

Arnór Sigurðsson | CSKA Moscow | 10 leikir, 1 mark

Jón Dagur Þorsteinsson | AGF | 4 leikir, 1 mark

Jóhann Berg Guðmundsson | Burnley | 75 leikir, 8 mörk

Mikael Neville Anderson | FC Midtjylland | 6 leikir

Albert Guðmundsson | AZ Alkmaar | 13 leikir, 3 mörk

Alfreð Finnbogason | FC Augsburg | 57 leikir, 15 mörk

Jón Daði Böðvarsson | Millwall | 50 leikir, 3 mörk

Kolbeinn Sigþórsson | AIK | 57 leikir, 26 mörk

Viðar Örn Kjartansson | Valerenga IF | 26 leikir, 3 mörk