Afhending miða á umspilsleik í mars fyrir handhafa A og DE skírteina
Uppfærð frétt, sjá hlekk hér að neðan.
Handhafar A og DE skírteina KSÍ geta frá og með fimmtudeginum 12. mars kl. 12:00 sótt um miða á leik A landsliðs karla við Rúmeníu í umspili um möguleikann á sæti í lokakeppni EM 2020. Hægt verður að nálgast miðana rafrænt á vef tix.is.
Smellið hér til að fara inn á viðeigandi síðu á tix.is
Hægt verður að sækja um einn miða á mann og sem fyrr er takmarkað magn í boði.
Leikurinn gegn Rúmeníu fer fram á Laugardalsvelli fimmtudaginn 26. mars kl. 18:45
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð