Ísland mætir El Salvador á sunnudag
A landslið karla mætir El Salvador í vináttuleik í Los Angeles í Bandaríkjunum á sunnudag og hefst leikurinn á miðnætti að íslenskum tíma. Um er að ræða seinni leik íslenska liðsins í þessu verkefni, en Ísland lagði Kanada með einu marki gegn engu á miðvikudag, í hörkuleik sem fór einnig fram í Kaliforníu.
El Salvador og Ísland hafa aldrei áður mæst. Áhugavert er að einn leikmaður í landsliði El Salvador leikur á Íslandi, Pablo Punyed, sem spilað hefur hér á landi síðan árið 2012 og hefur leikið hátt í 200 leiki fyrir Fjölni, Fylki, Stjörnuna, ÍBV og KR.