A karla mætir Póllandi 9. júní
A landslið karla mætir Póllandi í vináttuleik þann 9. júní næstkomandi. Leikið verður í Poznan í Póllandi og hefst leikurinn kl. 18:00 að staðartíma.
Ísland og Pólland hafa mæst sex sinnum áður í A landsliðum karla. Fyrstu tvær viðureignirnar voru í undankeppni EM 1980 og vann pólska liðið tveggja marka sigur í báðum leikjunum. Allar viðureignirnar síðan þá hafa verið vináttuleikir. Af þessum sex leikjum hafa Pólverjar unnið fimm, en einu sinni gerðu liðin jafntefli, en það var á Laugardalsvelli í ágúst 2001.
Mynd með grein: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net.