Dregið í lokakeppni EM 2020 á laugardaginn
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dregið verður í lokakeppni EM 2020 á laugardaginn og fer drátturinn fram í Búkarest í Rúmeníu.
Drátturinn hefst kl. 17:00 að íslenskum tíma og verður hægt að fylgjast með beinni útsendingu frá honum á vef UEFA.
Ljóst er að Ísland verður í riðli með Þýskalandi ef liðið fer í gegnum umspilið og tryggir sér sæti í lokakeppni. Á laugardaginn verður ljóst hvaða tvö lið til viðbótar bætast við riðilinn.