Ingvar og Hólmar Örn í landsliðshópinn
Gerðar hafa verið tvær breytingar á leikmannahópi A landsliðs karla fyrir leikina við Tyrkland og Moldóvu í undankeppni EM 2020. Rúnar Alex Rúnarsson og Rúnar Már Sigurjónsson eru meiddir og verða ekki með í þessum tveimur útileikjum, sem eru síðustu leikir íslenska liðsins í undankeppninni. Í þeirra stað hefur Erik Hamrén kallað á Ingvar Jónsson og Hólmar Örn Eyjólfsson.
Ísland mætir Tyrklandi í Istanbúl 14. nóvember og Moldóvu í Chisinau 17. nóvember.
Mynd með grein: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net.