A karla - Ísland upp um eitt sæti á nýjum heimslista FIFA
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland fer upp um eitt sæti á nýjum heimslista FIFA sem hefur verið birtur og situr nú í 40. sæti.
Liðið hefur leikið tvo leiki síðan síðasta útgáfa listans var gefin út, gegn Frakklandi og Andorra í undankeppni EM 2020. Ísland tapaði 0-1 fyrir Frakklandi en vann Andorra 2-0.
Ísland leikur tvo leiki í nóvember, en báðir fram fram ytra. Fyrst mæta strákarnir Tyrklandi 14. nóvember áður en þeir fara til Moldóvu og mæta þar heimamönnum 17. nóvember.